is | en

← Back to projects
Project·2025
JITR preview

JITR

Ný byltingakennd starfsmannalausn fyrir Íslensk fyrirtæki og einstaklinga

  • Java
  • Spring Boot
  • Next.js
  • PostgreSQL
Main visualSecondary visual

JITR er nútíma lausn sem hjálpar fyrirtækjum að manna vaktir með stuttum fyrirvara og býður einstaklingum upp á sveigjanleg tækifæri til að auka tekjur. Kerfið er hannað til að vera skalanlegt með Spring Boot bakenda, PostgreSQL gagnagrunn og Next.js framendaviðmóti.

Lausnin gerir fyrirtækjum kleift að auglýsa lausar vaktir, skoða starfsferil umsækjenda og velja hentugasta starfsmanninn í rauntíma. Einstaklingar í leit að auka vinnu geta sett upp prófíl, sótt um störf, og þannig bætt við sig vinnu sem hentar þeirra plani. Meðal eiginleika eru aðgangsstýring byggð á hlutverki notanda (einstaklingur eða fyrirtæki), auðkenning með JWT, notendaviðmót sem mótast vel að öllum skjástærðum, utanumhald um vaktir og áætlaður stuðningur við fullbúið mannauðskerfi fyrir vinnuafl.

JITR svarar augljósri þörf á íslenskum vinnumarkaði. Lausnin býður upp á eiginleika eins og val á starfsmönnum eftir prófíl, möguleika á samskiptum milli fyrirtækja og starfsmanna og meiri gagnsæi í ráðningarferlinu.