
Portfólíó Vefsíða
Portfólíó vefsíða til að kynna mig og sýna verkefnin mín.
- Next.js
- Next-Intl
- Motion
- Sanity
- Vercel


einarlogi.is
Ég gerði þessa síðu því mig langaði í vetvang til að kynna mig, sýna hæfni, og verkefni sem ég hef unnið að eða er að vinna í. Þetta gerði mér einnig kleyft að læra nýja tækni.
Ég valdi Next.js fyrir þessa síðu vegna þess að það er afkastamikið, sveigjanlegt, og býður uppá gott þróunarumhverfi.
- SEO-vænt - SSR(server-side rendering) og SSG(static site generation) gerir leitarvélarbestun auðveldari og skilvirkari en með SPA's(single page application).
- Afkastamikið - Þar sem síðurnar geta verið fyrirframrenderaðar og eingöngu þeim kóða hlaðið niður sem þarf hverju sinni, er útkoman hraðvirk og öflug vefsíða - sem bætir bæði notendaupplifun og skilar sér í hærra skori hjá google.
- Auðvelt að hýsa með Vercel - Þar sem Vercel er á bakvið Next.js er afar auðvelt að nýta sér þá til hýsingar og búa þeir einnig að góðum innbyggðum hagræðingum.
- Sveigjanleiki og skalaleiki - Býður tiltölulega auðveldlega uppá að bæta aukinni virkni við vefsíðuna, t.d. bloggi svo eitthvað sé nefnt.
- Gott þróunarumhverfi - Skrábundin leiðni(File-based routing), API lyklar, og innbyggðar hagræðingar gera þróun mjög þægilega.
Í stuttu máli, þá voru góð afköst, þægilegt þróunarumhverfi, og skalanleiki fyrir vefsíðuna það sem gerði Next.js að augljósa valkostinum fyrir þetta verkefni.
Ég vildi geta boðið uppá síðuna bæði á Íslensku og Ensku. Ég valdi að nýta mér Next-Intl í þann fítus þar sem það býður uppá þá eiginleika sem til þurfti, s.s. stuðning við að hafa mörg tungumál, ásamt því að geta haft sjálfgefin tungumál fyrir mismunandi lén. Þar að leiðandi gat ég látið einarlogi.is birtast á íslensku og einarlogi.com birtist á ensku. Reyndar ef vefsíðan hefur verið heimsótt á annaðhvort lénið þá geymir síðan tungumálið í köku og því gæti einarlogi.com skilað sér á íslensku ef einarlogi.is var heimsótt fyrst og öfugt.
Ég notaði Motion í þessi verkefni þar sem mig langaði að animeita (ljót sletta, ég veit!) og er motion öflugur tvívíddar animation pakki sem gerir animations mjög auðveldar. Geri manni ekki bara kleyft að gefa efni upphafs og útgangs animation, heldur líka að gera síðuskiptingar mýkri og skemmtilegri, sem bætir notendaupplifun.
Ég vildi læra að nota svokallað hauslaust vefumsónarkerfi, og þó ég hefði getað kóðað inn verkefni og það sem ég vill sýna að þá ákvað ég að nota vefumsjónarkerfi fyrir meiri sveigjanleika. Ég valdi Sanity vegna þess að það býður uppá öflugt notendaviðmót í gegnum Sanity Studio, sér um hýsingu, og er með gott ókeypis plan sem dugar vel fyrir þessa síðu.
Eins og ég kom inná áðan er Vercel sennilega besti kosturinn þegar það kemur að því að hýsa Next.js öpp. Sjá. fvirkt deployment, innbyggðar hagræðingar, og mjög hraðvirkt og öflugt. Þar sem þessi síða er ekki líkleg til að fá mikla umferð að þá er ókeypis planið þeirra meira en nóg fyrir þessa síðu.
Þetta verkefni er meira en bara ferilskrá/portfólíó. þetta hefur líka verið góður séns til að kynna mér Next.js, fjöltyngi, animations, og hauslaus vefumsjónarkerfi. Þessi stakkur veitir mér hraða, sveigjanleika, og flotta og notendavæna síðu. Ég lærði helling á þessu verkefni og hlakka til að bæta hana enn frekar eftir því sem ég bæti mig sem forritari.